27. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 14. desember 2023 kl. 14:02


Mætt:

Teitur Björn Einarsson (TBE) formaður, kl. 14:02
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 14:02
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 14:02
Björn Leví Gunnarsson (BLG) fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur (ÞSÆ), kl. 14:02
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 14:02
Oddný G. Harðardóttir (OH), kl. 14:02
Stefán Vagn Stefánsson (SVS) fyrir Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 14:02
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 14:02
Vilhjálmur Árnason (VilÁ) fyrir Diljá Mist Einarsdóttur (DME), kl. 14:02

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) 2. mál - breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024 Kl. 14:02
Nefndin ræddi drög að nefndaráliti.

Tillaga formanns um að afgreiða málið til 3. umræðu var samþykkt af eftirfarandi nefndarmönnum: Teiti Birni Einarssyni, Ágústi Bjarna Garðarssyni, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, Vilhjálmi Árnasyni, Guðbrandi Einarssyni, Stefáni Vagni Stefánssyni, Oddný G. Harðardóttur og Steinunni Þóru Árnadóttur. Björn Leví Gunnarsson sat hjá.

Undir nefndarálit með breytingartillögu meiri hluta rita: Teitur Björn Einarsson, Ágúst Bjarni Garðarsson, Vilhjálmur Árnason, Stefán Vagn Stefánsson og Steinunn Þóra Árnadóttir

2) Önnur mál Kl. 14:08
Nefndin ræddi starfið framundan. Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:13